Markmið og leiðir
Teiknistofan byggir á víðtækri reynslu af hönnun bygginga, ráðgjöf og skipulagsgerð.
Markmið okkar er að byggja á því sem er sérstakt og einkennandi fyrir hvert verkefni og sníða lausnir okkar að viðfangsefninu, fremur en ákveðnum stíl.
Markmið okkar er að vinna að hverju verkefni í nánu samstafi við verkkaupa og samstarfsaðila okkar í öðrum sérgreinum. Við leggjum áherslu á að áður en vinna hefst sé skýrt hverjar þarfir og væntingar verkkaupa eru.
Til þessa að skila árangursríkum niðurstöðum er nauðsynlegt að hyggja að grundvelli hvers verkefnis sérstaklega. Við teljum að með nánu samstarfi milli verkkaupa og fagmanna sé unnt að tryggja samræmi og jafnvægi milli tæknilegra úrlausna, kostnaðar og fagurfræði.